Gerrard handviss hvern Liverpool ætti að kaupa

Steven Gerrard.
Steven Gerrard. AFP

Steven Gerrard, goðsögn hjá Liverpool, segir að í hans huga komi aðeins einn leikmaður til greina sem félagið ætti að falast eftir í félagaskiptaglugganum sem opinn er nú í janúar.

Gerrard var spurður að því eftir 3:2-tap liðsins fyrir Swansea um helgina hvern Liverpool ætti að kaupa og hann var fljótur að svara.

„Sá sem ég held að við þurfum og mér finnst að við ættum að reyna að kaupa er [Virgil] Van Dijk frá Southampton,“ sagði Gerrard, en Liverpool hefur á síðustu árum keypt ansi marga leikmenn þaðan sem hafa ekki allir fallið í kramið á Anfield.

„Við höfum kannski keypt nógu marga af þeirra leikmönnum, svo þessi hugmynd mun sennilega bara falla til jarðar eins og loftlaus blaðra,“ sagði Gerrard.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert