Vill hjálpa Gerrard í stjórastólinn

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segist vilja hjálpa Steven Gerrard í vegferð sinni að verða knattspyrnustjóri.

Gerrard mun snúa aftur til Liverpool í næsta mánuði og starfa í akademíu félagsins, en hans langtímamarkmið er að verða knattspyrnustjóri. Klopp segist mjög spenntur fyrir endurkomu hans.

„Hann vill verða knattspyrnustjóri í framtíðinni og það er flott. Hann verður að vita hvað hann vill, því það að vera stjóri er starf sem þú þarft að læra og hann er á góðri vegferð með það,“ sagði Klopp.

„Með hans reynslu sem leikmaður ofan á það sem hann þarf að læra er framtíðin björt hjá honum. Allir vita hjá Liverpool að hann er frábær náungi og þetta eru stórgóðar fréttir fyrir knattspyrnuna,“ sagði Klopp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert