Hefja viðræður við Coutinho

Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho. AFP

Forráðamenn Liverpool eru sagðir ætla að hefja viðræður við Philippe Coutinho um framlengingu á samningi hans til þess að koma í veg fyrir að stórlið nái að lokka hann til sín.

Coutinho skrifaði undir fimm ára samning fyrir tveimur árum, en hefur vakið athygli stórliða í Evrópu með framgöngu sinni á tímabilinu með Liverpool.

Hinn 24 ára gamli Brasilíumaður er að komast á skrið á ný eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðan í nóvember. Hann hefur skorað fimm mörk í 14 deildarleikjum á tímabilinu og alls 35 mörk í 162 leikjum með Liverpool frá árinu 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert