Enska götublaðið The Sun fullyrðir að nokkrir af eldri leikmönnum Chelsea hafi hvatt knattspyrnustjórann Antonio Conte til að freista þess að fá markvörðinn Joe Hart til félagsins.
Þetta vilja leikmennirnir fari svo að Thibaut Courtois verði seldur til Real Madrid en Belginn hefur verið orðaður við Evrópumeistarana síðustu mánuði.
Hart virðist ekki eiga sér framtíð hjá Manchester City en hann er á láni frá félaginu hjá Torino á Ítalíu. Pep Guardiola, stjóri City, ákvað að treysta frekar á Claudio Bravo.