Chelsea og Man. Utd mætast í bikarnum

Chelsea mætir Manchester United í átta liða úrslitum.
Chelsea mætir Manchester United í átta liða úrslitum. AFP

Dregið var í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar í fótbolta í dag. Stórleikur umferðarinnar er leikur Chelsea og Manchester United á Stamford Bridge. 

Arsenal mætir utandeildaliðinu Lincoln á heimavelli sínum, takist liðinu að vinna annað utandeildalið í Sutton annað kvöld. Tottenham og Millwall mætast í Lundúnaslag á White Hart Lane og loks mætir Middlesbrough annaðhvort Huddersfield eða Manchester City. 

Drátturinn í heild sinni
Chelsea - Man. Utd
Middlesbrough - Huddersfield eða Man. City
Tottenham - Millwall
Sutton United eða Arsenal - Lincoln City

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert