Fengum Pogba á tilboði

Paul Pogba klappar með bróður sínum, Florentin.
Paul Pogba klappar með bróður sínum, Florentin. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að þær 89 milljónir punda sem félagið borgaði fyrir Paul Pogba muni fljótlega virka eins og tilboð, þar sem leikmenn sem eru ekki eins góðir komi til með að kosta það sama.

United borgaði Juventus 89 milljónir punda til að fá Pogba til Old Trafford, en Juventus borgaði ekkert til að fá Frakkann til sín frá Manchester United á sínum tíma. 

„Gagnrýnin sem hann fær er mjög hörð, bæði því hann er sá sem hann er og einnig vegna þess hvað hann kostaði. Ég er viss um að leikmenn sem eru ekki eins góðir munu kosta það sama næsta sumar. Það má segja að við fengum Pogba á tilboði,“ sagði Mourinho. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert