Utandeildaliðið Lincoln sem gerði sér lítið fyrir og sló úrvalsdeildarlið Burnley út í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu á einn leikmann í liði vikunnar í Evrópuboltanum hjá ítalska íþróttablaðinu Gazzetta dello Sport.
Sean Raggett sem skoraði sigurmark Lincoln á lokamínútunum gegn Burnley á Turf Moor er í liði vikunnar en Lincoln er fyrsta utandeildaliðið sem kemst í átta liða úrslit ensku bikarkeppninnar í 103 ár.
Einn annar enskur leikmaður er í liði vikunnar hjá Gazzetta dello Sport en það er framherjinn Harry Kane sem skoraði öll þrjú mörk Tottenham í 3:0 sigri liðsins á móti Fulham í bikarnum í gær.
Kane, Isco, Gameiro... Raggett.
— Bleacher Report UK (@br_uk) February 20, 2017
Lincoln City's FA Cup hero makes Italian newspaper Gazzetta dello Sport's European TOTW (📸: @Gazzetta_it) pic.twitter.com/epTLILspsx