Coyle rekinn frá Blackburn

Owen Coyle.
Owen Coyle. AFP

Enska B-deildarliðið Blackburn Rovers rak í dag knattspyrnustjóra liðsins, Owen Coyle, frá störfum.

Brottreksturinn kemur tveimur dögum eftir 2:1 tap Blackburn á heimavelli gegn Manchester United í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar en gengi liðsins í deildinni hefur verið afleitt og er það í næstneðsta sæti þegar 15 umferðum er ólokið.

Coyle, sem víða hefur komið við á þjálfaraferli sínum, tók við stjórastarfinu hjá Blackburn fyrir tímabilið og gerði tveggja ára samning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert