„Frábær liðsandi“

Leikmenn City fagna einu af mörkum sínum í kvöld.
Leikmenn City fagna einu af mörkum sínum í kvöld. AFP

Leikmenn Manchester City voru í sjöunda himni eftir hinn magnaða sigur gegn Mónakó í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Ethiad-vellinum í Manchester í kvöld.

„Fullt af mörkum. Mörkin þrjú sem við fengum á okkur er eitthvað sem við þurfum að vinna í en á móti sýndum við frábæran liðsanda, frábæran vilja og skoruðum frábær mörk,“ sagði miðvörðurinn John Stones, sem skoraði eitt af mörkum City í leiknum.

„Það er alltaf erfitt að lenda undir en strákarnir gerðu virkilega vel. Við spiluðum okkar fótbolta og héldum okkar striki. Við þurfum að bæta varnarleikinn okkar en Mónakó gaf okkur góðan leik og veitti okkur harða mótspyrnu. En það sem mestu máli skiptir er að við unnum frábæran sigur,“ sagði Raheem Sterling, leikmaður Manchester City, sem opnaði markaveisluna í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert