Rooney farinn að æfa á ný

Wayne Rooney hefur misst af síðustu fjórum leikjum vegna meiðsla.
Wayne Rooney hefur misst af síðustu fjórum leikjum vegna meiðsla. AFP

Wayne Rooney er snúinn aftur til æfinga hjá Manchester United, en hann hefur ekkert spilað vegna meiðsla síðan 1. febrúar síðastliðinn.

José Mourinho, knattspyrnustjóri United, sagði um helgina að hann vissi ekki hvenær Rooney sneri aftur og þá hvort hann gæti verið klár í síðari viðureign liðsins við St. Étienne í Evrópudeildinni á morgun.

Tíu útileikmenn æfðu sérstaklega í dag og hafa enskir fjölmiðlar velt því fyrir sér hvort Mourinho hafi með því opinberað byrjunarlið sitt fyrir leikinn á morgun. Rooney var í þeim hópi eftir að hafa misst af síðustu fjórum leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert