Lallana að framlengja við Liverpool

Adam Lallana.
Adam Lallana. AFP

Adam Lallana, leikmaður Liverpool, mun skrifa undir nýjan langtímasamning við félagið á næstu klukkustundum eftir því sem enskir fjölmiðlar greina frá.

Enski miðjumaðurinn er talinn hafa samþykkt nýjan samning sem gildir til næstu þriggja ára, með möguleika á fjórða árinu. Er hann sagður fá 110 þúsund pund í vikulaun.

Lallana kom til Liverpool árið 2014, en hann hefur skorað sjö mörk í 19 leikjum í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert