Mourinho teflir fram sterku liði

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United.
José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, teflir fram sterku liði í síðari leik liðsins gegn franska liðinu Saint-Étienne í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar en flautað verður til leiks í Frakklandi klukkan 17.

United stendur vel að vígi en það vann fyrri leikinn á Old Trafford í síðustu viku, 3:0.

Byrjunarlið United: Romero, Young, Smalling, Bailly, Blind, Carrick, Pogba, Fellaini, Mata, Mkhitaryan, Ibrahimovic. Varamenn: De Gea, Valencia, Rojo, Schweinsteiger, Lingard, Martial, Rashford.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert