Tileinkaði nýfæddum syni markið

Jamie Vardy skoraði sitt fyrsta mark í 74 daga.
Jamie Vardy skoraði sitt fyrsta mark í 74 daga. AFP

Jamie Vardy tileinkaði markið sem hann skoraði gegn Sevilla í Meistaradeildinni í kvöld nýfæddum syni sínum.

Eftir mikla markaþurrð gaf Vardy Leicester von um a komast áfram í átta liða úrslitin þegar hann minnkaði muninn í 2:1 sem urðu lokatölur leiksins. Þetta var fyrsta mark hans frá því 10. desember eða í 74 daga.

„Fögnuður minn yfir markinu var fyrir litla Finely. Hann er væntanlega sofandi en þetta var fyrir hann,“ sagði Vardy en Finley sonur hans kom í heiminn fyrir sex vikum.

„Við börðumst svo hart og allir gáfu sig 110 prósent í leikinn,“ sagði enski landsliðsmaðurinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert