Cazorla frá út tímabilið

Santi Cazorla.
Santi Cazorla. AFP

Spænski sóknarmaðurinn Santi Cazorla hjá Arsenal mun ekki leika meira með liðinu á leiktíðinni vegna meiðsla á ökkla.

Cazorla lék síðast með liðinu í októbermánuði á síðasta ári í Meistaradeild Evrópu er hann þurfti að fara af velli.

Cazorla er búinn að skora tvö mörk fyrir Arsenal á þessu tímabili, gegn Watford í ágúst og gegn Southampton í september.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert