Ragnar orðinn heill heilsu

Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sigurðsson. Ljósmynd/fulhamfc.com

Landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson, leikmaður enska B-deildarliðsins Fulham, hefur jafnað sig af meiðslum.

„Ég varð fyrir meiðslum á æfingu um daginn og fór því ekki með liðinu til Bristol í gær en ég er orðinn heill heilsu aftur,“ sagði Ragnar við mbl.is í dag.

Það hefur gengið upp og ofan hjá Ragnari á sínu fyrsta tímabili með Fulham. Hann hefur komið við sögu í 16 af 33 leikjum liðsins í deildinni og hefur í þeim skorað eitt mark.

Fulham hefur unnið þrjá leiki í röð í deildinni og er komið upp í sjöunda sæti deildarinnar en liðið tekur á móti Aroni Einari og félögum hans í Cardiff City á laugardaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert