„Vorum ekki nógu góðir“

Viðbrögð Eriksen og fleiri leikmanna Tottenham eftir annað mark Gent …
Viðbrögð Eriksen og fleiri leikmanna Tottenham eftir annað mark Gent í kvöld. AFP

Liðsmenn Tottenham voru daufir í dálkinn þegar þeir gengu af velli á Wembley í kvöld eftir að liðið féll úr leik í Evrópudeildinni eftir jafntefli gegn Gent, 2:2.

„Við erum mjög vonsviknir yfir því sem við gerðum í þessum leik og í leikjunum tveimur á móti Gent. Við vorum bara ekki nógu góðir og margar af síðustu sendingum okkar rötuðu ekki rétta leið. Ekki bætti úr skák að dómarinn var okkur ekki hliðhollur. Þrátt fyrir að vera manni færri áttum við möguleika á að skora sigurmarkið,“ sagði Daninn Christian Eriksson sem skoraði fyrsta markið á Wembley í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert