Schmeichel sendir Ranieri kveðju

Kasper Schmeichel.
Kasper Schmeichel. AFP

Kasper Schmeichel markvörður Englandsmeistara Leicester City sendi hlýjar kveðjur til Claudio Ranieri á Instagram síðu sinni en Ranieri var rekinn úr starfi knattspyrnustjóra í gærkvöld.

„Ég vil þakka Claudio fyrir allt sem hann gerði fyrir Leicester City og mig persónulega. Hann verðskuldar mikla virðingu og mikið lof fyrir það hvað hann afrekaði með okkur. Takk stjóri,“ skrifar Schmeichel.

Leicester hefur hafið leit að nýjum stjóra en aðstoðarstjórinn mun stýra liðinu á mánudaginn þegar það tekur á móti Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert