Lukaku jafnaði markamet Ferguson

Romelu Lukaku, framherji Everton, náði í dag merkum áfanga hjá …
Romelu Lukaku, framherji Everton, náði í dag merkum áfanga hjá félaginu. AFP

Belgíski framherjinn Romelu Lukaku jafnaði met skoska framherjans Duncan Ferguson yfir flest mörk í ensku úrvalsdeildinni þegar hann skoraði seinna mark Everton í 2:0-sigri liðsins gegn Sunderland í dag. Lukaku og Ferguson hafa nú hvor um sig skorað 60 deildarmörk fyrir Everton.

Ferguson sem er í þjálfarateymi Everton í dag skoraði mörk sín fyrir Everton á árunum 1994 - 1998 annars vegar og 2000 - 2006 hins vegar. Lukaku hefur hins vegar leikið með Everton frá árinu 2013 og hefur verið iðinn við kolann í markaskorun liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert