Fögnuður leikmanna United (myndskeið)

Leikmenn United fagna á Wembley í gær.
Leikmenn United fagna á Wembley í gær. AFP

Það var ósvikinn fögnuður í búningsklefa Mancehster United eftir sigurinn gegn Southampton í ensku deildabikarkeppninni á Wembley í gær.

Manchester United hefur þar með unnið deildabikarinn fimm sinnum og José Mourinho skráði nafn sitt í sögubækur félagsins en hann er fyrsti stjórinn hjá félaginu til að vinna stóran titil á sínu fyrsta tímabili með liðið.

Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá leikmenn Manchester-liðsins fagna titlinum í búningsklefanum á Wembley í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert