Henderson úr leik

Jordan Henderson verður ekki með Liverpool í kvöld.
Jordan Henderson verður ekki með Liverpool í kvöld. AFP

Liverpool verður án fyrirliðans Jordans Henderson þegar liðið sækir Englandsmeistara Leicester City heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Henderson meiddist á æfingu Liverpool-liðsins á föstudaginn og hann gæti einnig misst af leik sinna manna um næstu helgi en þá tekur það á móti Arsenal í stórleik umferðarinnar.

Með sigri í kvöld kemst Liverpool upp fyrir Arsenal og Manchester City í þriðja sæti deildarinnar en Leicester þarf nauðsynlega á stigum að halda. Englandsmeistararnir eru komnir í fallsæti og þurfa sigur í kvöld til að komast upp úr því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert