Er velkominn í Everton

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Ronald Koeman knattspyrnustjóri Everton er opinn fyrir þeim hugmyndum að Wayne Rooney snúi aftur til félagsins.

Rooney er uppalinn hjá Everton en 18 ára gamall yfirgaf hann liðið og gekk til liðs við Manchester United. Rooney hefur á undanförnum vikum verið orðaður við lið í Kína en hann tilkynnti það fyrir helgina að hann ætlaði að vera áfram í herbúðum Manchester United út leiktíðina.

„Ég tel að hann valið rétt að halda áfram með Manchester United og í ensku úrvalsdeildinni því ég hann á enn tvö til þrjú að spila á hæsta stigi. Hvað gerðist eftir tímabilið? Ég veit það ekki í huga mínum er einn af þeim leikmönum sem getur gert Everton mun sterkara,“ sagði Koeman við Sky Sports en margir stuðningsmenn Everton vilja gjarnan fá strákinn sinn aftur heim á Goodison Park.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert