Rodgers með betri árangur en Klopp

Alberto Moreno og Philippe Coutinho.
Alberto Moreno og Philippe Coutinho. AFP

Jürgen Klopp stýrði liði Liverpool í 55. leiknum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld þegar liðið beið lægri hlut fyrir Englandsmeisturum Leicester City á King Power-vellinum í Leicester.

Uppskera Liverpool í þessum 55 leikjum eru 94 stig en í fyrstu 55 leikjunum sem Brendan Rodgers, forveri Þjóðverjans í stjórastólnum, stýrði fékk Liverpool 97 stig.

Liverpool, sem er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, tekur á móti Arsenal síðdegis á laugardaginn og þar á eftir mætir Liverpool liði Manchester City og Everton.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert