Stuðningsmenn Liverpool ósáttir

Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool.
Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool. AFP

Stuðningsmenn Liverpool eru allt annað en sáttir með frammistöðu sinna manna í leiknum gegn Englandsmeisturum Leicester í gær og þeir kalla eftir því að tekið verði hressilega til í leikmannahópi liðsins í sumar.

Liverpool tapaði sínum fimmta leik í deildinni á tímabilinu og allir leikirnir hafa tapast á móti liðunum í neðri helmingi deildarinnar en tapleikir Liverpool hafa litið dagsins ljós á móti Burnley, Hull, Swansea, Bournemouth og Leicester.

James Milner og Lucas Leiva eru meðal þeirra leikmanna sem stuðningsmenn Liverpool vilja sjá fara frá félaginu en hér getur að líta nokkrar Twitter-færslur frá stuðningsmönnum rauða hersins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert