Fimm farnir sem Van Gaal keypti til United

Louis van Gaal og José Mourinho.
Louis van Gaal og José Mourinho. AFP

Bastian Schweinsteiger er fimmti leikmaðurinn sem yfirgefur Manchester United af þeim tólf leikmönnum sem Louis van Gaal fyrrum knattspyrnustjóri keypti til félagsins þegar hann var við stjórnvölinn á Old Trafford.

Eins og fram á mbl.is fyrr í morgun hefur Schweinsteiger samið við bandaríska liðið Chicago Fire til eins árs.

Van Gaal pungaði út 250 milljónum punda í þá tólf leikmenn sem hann fékk til Manchester United og auk Schweinsteigers eru Angel Di Maria, Victor Valdes, Memphis Depay og Morgan Schneiderlin allir horfnir á braut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert