Jones heim úr enska landsliðinu

Phil Jones.
Phil Jones. AFP

Phil Jones, varnarmaður Manchester United, hefur dregið sig út úr enska landsliðshópnum og er kominn aftur í herbúðir United.

Jones meiddist á landsliðsæfingu í dag, og mun ekki vera klár í slaginn fyrir vináttulandsleik Englands og Þýskalands á morgun. Enska liðið mætir svo Litháen í undankeppni heimsmeistaramótsins á sunnudag.

Samkvæmt yfirlýsingu enska knattspyrnusambandsins er ekki búist við því að landsliðsþjálfarinn Gareth Southgate muni kalla inn annan varnarmann í stað Jones fyrir leikinn á morgun. En þar sem Gary Cahill verður í banni á sunnudag gæti komið maður í manns stað fyrir þann leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert