West Ham sýnir Rooney áhuga

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Sky Sports hefur heimildir fyrir því að West Ham hafi áhuga á að fá Wayne Rooney fari svo að hann fái að yfirgefa Manchester United í sumar.

Samningur Rooney við Manchester United rennur út sumarið 2019 en reiknað er með að José Mourinho leyfi honum að yfirgefa liðið í sumar.

Rooney hefur átt erfitt uppdráttar hjá Manchester-liðinu á tímabilinu og hefur aðeins verið í byrjunarliðinu í níu leikjum liðsins í deildinni.

Sjálfur hefur Rooney sagt að einu félögin í ensku úrvalsdeildinni sem hann gæti spilað með séu Manchester United og Everton en United keypti leikmanninn frá Everton árið 2004. Síðan þá hefur Rooney fimm sinnum orðið Englandsmeistari með Manchester-liðinu og einu sinni Evrópumeistari. Fyrr á leiktíðinni sló hann markametið hjá Manchester United þegar hann skaust fram úr Sir Bobby Charlton.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert