Olsson í sænsku úrvalsdeildina

Jonas Olsson.
Jonas Olsson. Ljósmynd/twitter

Sænski knattspyrnumaðurinn Jonas Olsson hefur spilað sinn síðasta leik með enska úrvalsdeildarliðinu WBA.

Olsson, sem er 34 ára gamall, hefur leikið með WBA síðustu níu árin, alls 253 leiki og í þeim hefur hann skorað 14 mörk. Hann hefur aðeins komið við sögu í sjö leikjum með WBA í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Olsson hefur ákveðið að spila í heimalandi sínu en hann hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðið Djurgåarden og hefur fengið sig lausan WBA en hann átt einn mánuð eftir af samningi sínum við félagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert