Alli fékk þriggja leikja bann (myndskeið)

Dele Alli.
Dele Alli. AFP

Enski landsliðsmaðurinn Dele Alli hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann í Evrópukeppninni í knattspyrnu af aganefnd evrópska knattspyrnusambandsins.

Alli var rekinn af velli í viðureign Tottenham og belgíska liðsins Gent í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar, þar sem Gent sló Lundúnaliðið úr leik, eftir afar ljóta tæklingu á einum liðsmanni Gent eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert