Ben Gibson varnarmaður úr Middlesbrough hefur verið kallaður inn í enska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Litháum í undankenni HM sem fram fer á Wembley á sunnudaginn.
Gibson er 24 ára gamall sem leikið hefur með öllum yngri landsliðum Englands en hefur ekki leikið með A-liðinu. Hann tekur sæti Chris Smalling úr Manchester United sem glímir við meiðsli.