Hazard nálgast Real Madrid

Eden Hazard.
Eden Hazard. AFP

Spænskir fjölmiðlar greina frá því að belgíski miðjumaðurinn Eden Hazard, sem hefur farið á kostum með liði Chelsea á leiktíðinni, hafi samþykkt að ganga í raðir Real Madrid í sumar.

Zinedine Zidane þjálfari Evrópumeistaranna vill ólmur fá Hazard í sínar raðir og og greina fjölmiðlar frá því að umboðsmaður Belgans hafi átti jákvæðar viðræður við forráðamenn Madridarliðsins um helgina en Hazard er samningsbundinn Chelsea til ársins 2020.

Antonio Conte knattspyrnustjóri Chelsea er sagður vera áhugasamur að fá Kólumbíumanninn James Rodriguez frá Real Madrid í staðinn en Rodriguez hefur átt frekar erfitt uppdráttar hjá Real Madrid frá því hann gekk til liðs við félagið frá Mónakó fyrir þremur árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert