Leigja einkaþotu fyrir Brassana

Philippe Coutinho og Roberto Firmino.
Philippe Coutinho og Roberto Firmino. AFP

Liverpool mun flytja Brasilíumennina Philippe Coutinho og Roberto Firmino í einkaþotu frá Sao Polo í Brasilíu til Englands eftir leik Brasilíumanna og Bólivíumanna sem eigast við í undankeppni HM í kvöld.

Liverpool vill fá Brasilíumennina til baka sem allra fyrst enda er framundan stórleikur í hádeginu á laugardaginn þegar Liverpool fær granna sína í Everton í heimsókn á Anfield.

Liverpool er í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Everton er í sjötta sætinu, sex stigum á eftir erkifjendum sínum. Everton hefur ekki náð að vinna sigur á Anfield síðan árið 1999.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert