„Fer aldrei frá ókláruðu verki“

Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. AFP

Zlatan Ibrahimovic framherji Manchester United gefur sterklega til kynna að hann muni spila áfram með liði United á næstu leiktíð.

Zlatan gekk í raðir Manchester United fyrir tímabilið og gerði eins árs samning við félagið en óvissa hefur ríkt um hvað taki við hjá honum eftir tímabilið.

„Ég nýtt þess,“ segir Zlatan við enska blaðið Manchester Evening News þegar hann er spurður út í dvöl sína hjá Manchester-liðinu til þessa.

„Ég er þannig manneskja að þegar ég fer í eitthvað verkefni þá tek ég það 200% og ég geri það sem ég er góður í. Ég fer aldrei frá ókláruðu verki. Við sjáum til hvað gerist. Við erum að ræða saman. Ég hef þann möguleika að taka annað ár og ég vil gera frábæra hluti svo lengi sem ég verð hérna,“ sagði Zlatan, sem er markahæsti leikmaður Manchester United á leiktíðinni.

Zlatan tekur út þriðja og síðasta leik sinn í banni þegar Manchester United tekur á móti WBA á laugardaginn en hann verður klár í slaginn á þriðjudaginn þegar United mætir Everton á Old Trafford.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert