Gylfi Þór fékk fína einkunn

Gylfi Þór Sigurðsson spilaði vel fyrir Swansea City gegn Stoke …
Gylfi Þór Sigurðsson spilaði vel fyrir Swansea City gegn Stoke City í dag. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, fékk fína einkunn í umfjöllun Skysports fyrir frammistöðu sína fyrir Swansea City í 2:0-sigri liðsins gegn Stoke City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í dag.

Gylfi Þór fékk sjö í einkunn, líkt og Alfie Mawson, Leon Britton, Tom Carroll, Ki Sung-Yueng og Fernando Llorente. Lukasz Fabianski og Andre Ayew fengu hæstu einkunn í liði Swansea City, en þeir fengu einkunnina átta.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert