Næstfallegasta markið á ferlinum

Boltinn á leið í samskeytin eftir skot Nemanja Matic, leikmanns …
Boltinn á leið í samskeytin eftir skot Nemanja Matic, leikmanns Chelsea, í leik liðsins gegn Tottenham Hotpsur í dag. AFP

„Þetta var fallegt mark, en ég er fyrst og fremst ánægður með hversu vel liðið lék í þessum leik. Það er frábært að komast alla leið í úrslit og fá annað tækifæri til þess að spila á þessum glæsilega velli [Wembley],“ sagði Nemanja Matic í samtali við BBC, en hann skoraði glæsilegt mark í 4:2-sigri liðsins gegn Tottenham Hotspur í undanúrslitum enska bikarkeppninnar í knattspyrnu karla á Wembley í dag.

„Ég er mjög ánægður með markið mitt, en ég tel þetta ekki fallegasta markið á ferlinum. Ég skoraði fallegra mark fyrir Benfica í nágrannaslag gegn Porto. Þetta mark kemur hins vegar klárlega þar á eftir. Það er gaman að eiga möguleika á að verða bikarmeistarar og við stefnum að sjálfsögðu að því,“ sagði Matic um markið sem hann skoraði í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert