Þær voru ekki fallegar myndirnar sem birtust í morgun af stuðningsmönnum Arsenal og Manchester City slást fyrir utan Wembley eftir sigur Arsenal í undanúrslitaviðureign liðanna í enska bikarnum í gær.
Sjá frétt mbl.is: Arsenal í úrslitaleikinn
Arsenal lagði City að velli 2:1 eftir framlengdan leik og mikla spennu og svo virðist sem einhverjir stuðningsmenn hafi því miður látið kappið bera sig ofurliði.
Myndskeiðsupptöku af nokkrum stuðningsmönnum slást má sjá með því að smella HÉR á vef The Telegraph en nokkur börn urðu m.a. vitni að atvikinu.