„Var ánægður með mína menn“

Conte leyfði John Terry að spreyta sig síðustu mínútur leiksins.
Conte leyfði John Terry að spreyta sig síðustu mínútur leiksins. AFP

Antonio Conte knattspyrnustjóri Chelsea var ánægður með framlag sinna manna í sigrinum gegn Southampton á Brúnni í kvöld en með honum náði liðið sjö stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

„Þetta var góður sigur og ég er ánægður með það sem mínir menn lögðu í leikinn. Þetta var ekki auðvelt eftir erfiðan leik á móti Tottenham um síðustu helgi. Southampton er með góða leikmenn og spilar góðan fótbolta,“ sagði Conte eftir leikinn.

„Að hafa náð að skora undir lok fyrri hálfleiksins var afar mikilvægt. Ég fylltist bjartsýni því ég sá liðið sýna mikinn vilja til þess að vinna leikinn. Á þessum tímapunkti á leiktíðinni er það ekki auðvelt,“ sagði Conte.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert