Enskir fjölmiðlar greina frá því að José Mourinho knattspyrnustjóri Manchester United vilji frá brasilíska miðjumanninn Willian frá Chelsea í sumar.
Mourinho hyggst bæta í það minnsta fjórum nýjum leikmönnum í hóp sinn fyrir næstu leiktíð en ljóst er að Zlatan Ibrahimovic spilar ekki meira með Manchester-liðinu og þá er ólíklegt að fyrirliðinn Wayne Rooney haldi kyrru fyrir.
Willan hefur ekki átt fast sæti í liði Chelsea á leiktíðinni en hann hefur aðeins verið í byrjunarliðinu í 13 leikjum í úrvalsdeildinni. Honum hefur þó tekist að skora 10 mörk í öllum keppnum á tímabilinu og skoraði til að mynda tvö mörk í 4:2 sigri Chelsea gegn Tottenham í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar um síðustu helgi.
Það var einmitt Mourinho sem fékk Willian til Chelsea en Brassinn kom til Lundúnaliðsins frá rússneska liðinu Anzhi Makhachkala í ágúst 2013.