„Þetta var ótrúlegt“

Leikmenn Tottenham fagna marki Christian Eriksens í kvöld.
Leikmenn Tottenham fagna marki Christian Eriksens í kvöld. AFP

Mauricio Pochettino knattspyrnustjóri Tottenham var að vonum ánægður með sigur sinna manna gegn sterku liði Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

„Þetta var ótrúlegt og frammistaða liðsins var mjög góð. Það var gott að ná þremur stigum á móti Crystal Palace sem hefur verið í góðu stuði á undanförnum vikum. Við erum á lífi í titilbaráttunni og munum berjast til þrautar. Ég þarf að sjá markið hjá Eriksen í sjónvarpinu en frá mér séð var þetta frábært mark hjá honum,“ sagði Pochettino.

Tottenham, sem er fjórum stigum á eftir toppliði Chelsea, mætir grönnum sínum í Arsenal á sunnudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert