Lovren framlengir við Liverpool

Dejan Lovren og Jürgen Klopp verða saman næstu árin.
Dejan Lovren og Jürgen Klopp verða saman næstu árin. AFP

Dejan Lovren hefur framlengt samning sinn við Liverpool og er nú samningsbundinn félaginu til ársins 2021. Félagið tilkynnti þetta í morgun.

Lovren er 27 ára gamall og er að ljúka sínu þriðja tímabili hjá Liverpool eftir að hafa verið keyptur frá Southampton sumarið 2014. Hann hefur leikið alls 105 leiki með liðinu og skorað fjögur mörk.

„Þetta er einstakur dagur fyrir mig og mína fjölskyldu. Ég held að ég sé hamingjusamasti maður í heimi núna og þetta er annar draumur að rætast. Mig hefur alltaf dreymt um að vera eins lengi og ég get hjá einu og sama félaginu sem ég elska – og það er Liverpool,“ sagði Lovren eftir undirskriftina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert