Fyrsti útsigur Burnley á tímabilinu

Andre Gray er hér í þann mund að skora seinna …
Andre Gray er hér í þann mund að skora seinna mark Burnley í dag og innsigla sigurinn. AFP

Burnley sigraði Crystal Palace 2:0 á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Var þetta fyrsti útisigur Burnley í deildinni í vetur og liðið nú með 39 stig í 14. sæti. Palace er hins vegar með 38 stig í 16. sæti.

Ashley Barnes kom gestunum yfir á 7. mínútu leiksins og var það eina mark fyrri hálfleiks. Varamaðurinn Andre Gray gulltryggði sigur gestanna með marki sex mínútum fyrir leikslok.

Jóhann Berg Guðmundsson sat allan tímann á varamannabekk Burnley í dag.

Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu.

Cr. Palace 0:2 Burnley opna loka
90. mín. Loïc Rémy (Cr. Palace) á skot sem er varið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert