Gylfi Þór Sigurðsson var valinn maður leiksins af BTsport í útsendingu stöðvarinnar frá leik Manchester United og Swansea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Gylfi skoraði stórglæsilegt jöfnunarmark fyrir Swansea seint í leiknum, beint úr aukaspyrnu, og var ógnandi allan tímann.
Glenn Hoddle, fyrrverandi landsliðsmaður Englands og síðar landsliðsþjálfari, var sérfræðingur BTsport á leiknum og fór fögrum orðum um Gylfa.
Þetta er þriðja árið í röð sem Gylfi skorar fyrir Swansea á Old Trafford. Síðastur til að skora í þremur útileikjum í röð gegn Manchester United var Sergio Agüero, framherji Manchester City, árið 2015.