„Mér hefur gengið vel hérna“

Gylfi Þór Sigurðsson skorar úr aukaspyrnunni á Old Trafford í …
Gylfi Þór Sigurðsson skorar úr aukaspyrnunni á Old Trafford í dag. AFP

Gylfi Sigurðsson segir að sér hafi gengið vel á Old Trafford í Manchester síðustu ár, enda ekki að undra þar sem þriðja árið í röð skoraði hann gegn United í dag. Hann tryggði þá Swansea stig og 1:1-jafntefli.

„Mér hefur gengið vel hérna síðustu þrjú ár og skorað í öllum leikjunum. Þetta var mjög mikilvægt mark í dag og þetta stig gæti verið mjög mikilvægt þegar tímabilinu er lokið,“ sagði Gylfi við BTSport strax að leik loknum.

Swansea er sem fyrr tveimur stigum frá öruggu sæti þegar þrír leikir eru eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert