Clichy yfirgefur Manchester City

Gaël Clichy í leik með Manchester City.
Gaël Clichy í leik með Manchester City. AFP

Franski varnarmaðurinn Gaël Clichy mun yfirgefa Manchester City í sumar, þegar samningur hans við enska félagið rennur út. 

Clichy er 31 árs og kom hann til City frá Arsenal árið 2011. Hann spilaði 192 leiki fyrir City og vann hann ensku deildina í tvígang með liðinu. 

Enn á eftir að koma í ljós hvort Yaya Toure, Jesus Navas, Bacary Sagna og Willy Caballero yfirgefi félagið, en þeir eru allir samningslausir í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert