Lék hverja einustu mínútu

John Terry og Cesar Azpilicueta með Englandsbikarinn á Stamford Bridge …
John Terry og Cesar Azpilicueta með Englandsbikarinn á Stamford Bridge í gær. AFP

Spánverjinn Cesar Azpilicueta lék hverja einustu mínútu með meistaraliði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu sem lauk í gær.

Azpilicueta er þar með kominn í hóp með þremur öðrum leikmönnum sem léku allar mínúturnar með meistaraliðum.

Wes Morgan, fyrirliði Leicester, gerði það á síðustu leiktíð, John Terry gerði það með Chelsea tímabilið 2014-15 og Gary Pallister náði því með Manchester United þegar liðið varð Englandsmeistari tímabilið 1992-93.

Í leikjunum 38 skoraði Azpilicueta eitt mark og gaf fjórar stoðsendingar. Chelsea vann 30 af 38 leikjum sínum í deildinni og engu öðru liði hefur tekist að vinna jafn marga leiki frá því að liðunum var fjölgað í 20 í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert