Neville segir Rooney að yfirgefa United

Hvað gerir Rooney í sumar?
Hvað gerir Rooney í sumar? AFP

Phil Neville, fyrrverandi leikmaður Manchester United og Everton, segir að Wayne Rooney verði að yfirgefa Manchester United í sumar. Rooney hefur lítið fengið að spila undir stjórn José Mourinho á leiktíðinni. 

Everton er eitt fjölmargra félaga sem vilja frá Rooney, en hann hefur einnig verið orðaður við Bandaríkin og Kína. 

„Eins og leiktíðin hefur þróast er það nauðsynlegt fyrir Rooney að færa sig. Hann er ekki búinn að spila eins mikið og hann hefur viljað. Ef hann vill halda áfram að spila í fremstu röð verður það að vera annars staðar en hjá United,“ sagði Neville. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert