Defoe verður áfram í úrvalsdeildinni

Jermain Defoe.
Jermain Defoe. AFP

Jermain Defoe, sem féll með liði Sunderland úr ensku úrvalsdeildinni í vor, verður áfram í deild þeirra bestu en hann er að ganga í raðir Bournemouth.

Defoe er orðinn 34 ára gamall en hann skoraði 15 mörk fyrir Sunderland í deildinni. Liðið skoraði alls 29 mörk og var enginn leikmaður deildarinnar með jafnhátt hlutfall af skoruðum mörkum hjá sínu liði.

Defoe var á láni hjá Bournemouth þegar hann var að stíga sín fyrstu skref á ferlinum hjá West Ham og skoraði þá meðal annars í tíu leikjum í röð í ensku C-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert