Fjölskylda Guardiola var á tónleikunum

Pep Guardiola.
Pep Guardiola. AFP

Eiginkona Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City, og tvö börn hans voru á tónleikum Ariana Grande í Manchester Arena í gærkvöld þar sem gerð var sjálfsmorðsárás með þeim afleiðingum að 22 létu lífið og á sjötta tug manna slasaðist.

„Ég er í sjokki og get ekki trúað því sem gerðist í gærkvöld. Sendi mína dýpstu samúð til fjölskyldu og vina fórnarlambanna,“ skrifar Guardiola á Twitter en Cristina Serra, eiginkona spænska knattspyrnustjórans, ásamt tveimur ungum dætrum þeirra, Valentinu og Mariu, voru á meðal þeirra þúsunda sem voru á tónleikunum.

Þær sluppu ómeiddar frá sprengingunni en ekki liggur ljóst fyrir hvort þær hafi enn verið á staðnum þegar sprengingin átti sér stað.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert