Middlesbrough, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni, tilkynnti í dag að spænski markvörðurinn Victor Valdes muni yfirgefa félagið þegar samningur hans við félagið rennur út í lok næsta mánaðar.
Valdes, sem er 35 ára gamall, kom til Middlesbrough síðastliðið sumar eftir stutta viðveru hjá belgíska liðinu Standard Liege. Hann lék 28 leiki með Middlesbrough.