Gylfi og Llorente bestir

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. AFP

Blaðamenn á velska vefmiðlinum Wales Online hafa gert upp tímabilið hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni en deildinni lauk um síðustu helgi.

Fimm blaðamenn gefa álit sitt og hjá þremur þeirra er Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður ársins en tveir nefna spænska framherjann Fernando Llorente sem varð markahæstur leikmanna velska liðsins á tímabilinu með 14 mörk en mörg þeirra skoraði hann eftir sendingar frá Gylfa.

Einn þeirra telur mark Gylfa Þórs gegn Arsenal sem besta mark tímabilsins hjá Swansea þar sem hann stal boltanum af Granit Xhaka og þrumaði boltanum í hornið fram hjá Petr Cech.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert