United komið fram úr Liverpool

Leikmenn Manchester United fagna eftir sigurinn í Evrópudeildinni.
Leikmenn Manchester United fagna eftir sigurinn í Evrópudeildinni. AFP

Með sigrinum í Evrópudeildinni í gærkvöld komst Manchester United fram úr Liverpool sem sigursælasta lið Englands frá upphafi.

Manchester United hefur nú unnið 42 stóra titla að undanskildum Samfélagsskildinum, heimstaratitli félagsliða, og UEFA-Super Cup. Það er einum titli meira en erkifjendur þeirra í Liverpool hafa unnið.

Titlar Manchester United:

20 - Englandsmeistari
12 - Bikarmeistari
 5 - Deildarbikarmeistari
 3 - Evrópumeistari
 1 - Evrópumeistari bikarhafa
 1 - Evrópudeildarmeistari

Titlar Liverpool:

18 - Englandsmeistari
 7 - Bikarmeistari
 8 - Deildarbikarmeistari
 5 - Evrópumeistari
 3 - Evrópumeistari félagsliða

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert